Um Okkur

Ísland gerðist aðili að UNESCO – Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna – þann 8. júní 1964. Hinn 23. maí 1966 ákvað ríkisstjórnin að stofna íslenska UNESCO-nefnd. Nefndin kom saman til fyrsta fundar hinn 5. október 1966. Í fyrstu nefndinni sátu 15 fulltrúar samtaka og stofnana auk formanns sem skipaður var af menntamálaráðherra. Nefndin starfaði samkvæmt starfsreglum sem menntamálaráðherra setti á grundvelli ákvæða í stofnskrá UNESCO.

Hinn 17. janúar 1990 voru settar nýjar starfsreglur fyrir Íslensku UNESCO-nefndina og nefndarmönnum fækkað í 5. Þær voru endurskoðaðar í október 1997, en þá var ákveðið að skipa nefndina fulltrúa fyrir málefni ungs fólks. Nefndin starfar nú skv. starfsreglum frá 18. febrúar 2003.

Hlutverk Íslensku UNESCO-nefndarinnar er að vera ríkisstjórninni og sendinefnd Íslands á aðalráðstefnu UNESCO til ráðuneytis í málum er varða UNESCO og tengiliður á milli UNESCO og íslenskra mennta-, vísinda- og annarra menningarstofnana. Nefndin annast upplýsingastarfsemi um málefni UNESCO á Íslandi og hefur samvinnu við aðrar íslenskar nefndir sem starfa að málefnum Sameinuðu þjóðanna og sérstofnana þeirra.

UNESCO Íslenska landsnefndin
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
Reykjastræti 6 101 Reykjavík
Sími: 545 9600 | Netfang: mnh@mnh.is

UNESCO Íslenska landsnefndin

Starfsemi UNESCO

UNESCO vinnur að markmiðum sínum í gegnum fjögur áherslusvið: menntun, raun-, hug- og félagsvísindi, menningu, auk samskipta og fjölmiðlunar.

Sjá nánar um: Málaflokka UNESCO

Heimsmarkmiðin

UNESCO skipar mikilvægan sess í heiminum í dag þegar við erum sífellt að leita nýrra leiða og tækifæra til þess að koma á langvarandi friði og stuðla að sjálfbærri þróun. Fólk verður að treysta á kraft upplýsingaöflunar til að stuðla að nýsköpun, víkka sjóndeildarhringinn og sjá til þess að við séum ekki skerða tækifæri komandi kynslóða. Stofnun eins og UNESCO er mikilvægur hluti Sameinuðu þjóðanna enda eru friður og sjálfbær þróun lykilatriði sem verða að vera til staðar til þess að líf geti þrifist á jörðinni næstu þúsundir ára.

UNESCO er því lykilstofnun þegar kemur að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og stuðla markmið stofnunarinnar og verkefni hennar beint að framgöngu nær allra heimsmarkmiðanna.

Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO

Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (e. United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization, UNESCO) er ein undirstofnana Sameinuðu þjóðanna og heyrir hún undir Efnahags- og félagsmálaráð SÞ (ECOSOC). Markmið UNESCO er að koma á friði í heiminum og tryggja öryggi íbúa heimsins með alþjóðlegu samstarfi á sviði mennta-, vísinda- og menningarmála. Stofnunin var sett á laggirnar árið 1945 í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar og átti hún að koma á fót „vitsmunalegri og siðferðilegri samstöðu mannkynsins” og koma með því í veg fyrir að önnur heimsstyrjöld brytist út.

Í dag eru 193 ríki aðilar að UNESCO, ásamt 11 öðrum ríkjum sem ekki hafa sjálfstæði. Ísland gerðist aðili að UNESCO þann 8. júní 1964. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í París í Frakklandi, en auk þess starfrækir UNESCO 53 svæðisskrifstofur og 199 landsnefndir um allan heim sem vinna að markmiðum stofnunarinnar. Núverandi aðalframkvæmdastjóri UNESCO er hin franska Audrey Azoulay, hún hóf störf þann 15. nóvember 2017 og situr til fjögurra ára. Við lok tímabilsins er heimilt að skipa aðalframkvæmdastjóra í fjögur ár til viðbótar og hefur Azoulay þegar verið tilnefnd til annars tímabils.

Ísland í UNESCO

Hlutverk íslensku UNESCO-nefndarinnar er að vera ríkisstjórninni og sendinefnd Íslands á aðalráðstefnu UNESCO til ráðuneytis í málum er varða UNESCO og tengiliður á milli UNESCO og íslenskra mennta-, vísinda- og annarra menningarstofnana. Nefndin annast upplýsingastarfsemi um málefni UNESCO á Íslandi og hefur samvinnu við aðrar íslenskar nefndir sem starfa að málefnum Sameinuðu þjóðanna og sérstofnana þeirra.

UNESCO er ein áherslustofnana Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og eru ýmis verkefni starfrækt undir merkjum stofnunarinnar hér á landi. Hér má t.a.m. nefna Vigdísarstofnun, alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar, og GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, sem starfrækir Jafnréttisskólann, Jarðhitaskólann, Landgræðsluskólann og Sjávarútvegsskólann. Hlutverk GRÓ er að styðja við getu þróunarríkja á þessum fjórum sviðum sem starfsemin tekur til og auka þar með möguleika þeirra á að ná alþjóðlegum markmiðum sínum í samræmi við heimsmarkmiðin.

Ísland sækist nú eftir setu í framkvæmdastjórn UNESCO fyrir tímabilið 2021-2025, en framboð Íslands var formlega tilkynnt til aðildarríkja UNESCO í júní 2018. Töluverð samkeppni er um sætin í framkvæmdastjórninni og hefur framboðinu verið fylgt eftir af fullum þunga. Helstu áherslur í framboði Íslands á sviði UNESCO eru menntun, jafnrétti, málefni barna og ungmenna, menningarmál og að skilja engan eftir. Kosið verður um hvort Ísland fái sæti í framkvæmdastjórn UNESCO í nóvember n.k. Hægt er að kynna sér framboðið nánar á kosningavefnum.

Ísland hefur áður átt fulltrúa í framkvæmdastjórn UNESCO, en fyrst árin 1983-87 og aftur árin 2001-2005. Frá árinu 1998 hefur Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, jafnframt verið velgjörðarsendiherra tungumála hjá stofnuninni og var um tveggja ára skeið formaður alþjóðaráðs um siðferði í vísindum og tækni (COMEST).

Skipan UNESCO Íslensku landsnefndarinnar (2023-2026)

Sæunn Stefánsdóttir

Sæunn Stefánsdóttir

Formaður og fulltrúi fyrir vísindamál
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir

Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir

Aðalritari
Harpa Þórsdóttir

Harpa Þórsdóttir

Fulltrúi fyrir menningarmál
Árdís Ármannsdóttir

Árdís Ármannsdóttir

Fulltrúi fyrir fjölmiðlamál
Guðni Olgeirsson

Guðni Olgeirsson

Fulltrúi fyrir menntamál
Arna Dís Heiðarsdóttir

Arna Dís Heiðarsdóttir

Fulltrúi fyrir málefni ungs fólks
Elín Flyering

Elín Flyering

Fulltrúi utanríkisráðuneytis

Reglur um UNESCO Íslensku landsnefndina

Scroll to Top