Bókmenntaborgin Reykjavík

Reykjavík var útnefnd Bókmenntaborg UNESCO í ágúst 2011. Hún var fimmta borgin í heiminum til að hljóta þennan heiður á eftir Edinborg, Melbourne, Iowa City og Dublin — og jafnframt sú allra fyrsta þar sem annað mál en enska er móðurmál íbúa. Titillinn er varanlegur og felur ekki aðeins í sér viðurkenningu á ríkri arfleifð, heldur einnig skuldbindingu til að efla bókmenntir, sköpunargleði og aðgengi almennings að orðlist til framtíðar.

Bókmenntaborgirnar eru hluti af stærra neti Skapandi borga UNESCO (UNESCO Creative Cities Network), sem stofnað var árið 2004 til að tengja saman borgir sem nýta menningu og skapandi greinar sem drifkraft sjálfbærrar þróunar.

Skoða nánar: Bókmenntaborgin – Kynning á fundi UNESCO-aðila 2019.pdf

Scroll to Top