Málaflokkar

Meginmarkmið UNESCO er að stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að efla alþjóðlega samvinnu á sviði menntunar, vísinda- og menningarmála. Starfsemi UNESCO skiptist í grófum dráttum í fjóra þætti eða svið, en þau eru:

Menntun

Menntun umbreytir lífi og er kjarninn í markmiði UNESCO að koma á langvarandi friði, uppræta fátækt og knýja áfram sjálfbæra þróun. UNESCO telur að menntun séu mannréttindi og að allir jarðarbúar skuli hafa aðgang að góðri menntun. UNESCO er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna með umboð til að taka á öllum þáttum menntunar og hefur stofnuninni því verið falið að leiða alþjóðlega menntastefnu til ársins 2030 (Global Education 2030 Agenda) með tilliti til heimsmarkmiðs 4 – Menntun fyrir alla. Vegvísirinn að þessu er Framkvæmdaáætlun um menntun 2030.

UNESCO veitir forystu og leiðsögn á sviði menntunar á alþjóðlegum og svæðisbundnum vettvangi. Stofnunin styrkir menntakerfi um allan heim og bregst við alþjóðlegum áskorunum samtímans með fræðslu að leiðarljósi. Starfsemi UNESCO nær yfir þróun menntunar allt frá leikskóla til háskóla, og ýmislegt umfram það. Helstu þemu stofnunarinnar á sviði menntunar eru meðal annars aukið læsi, fræðsla um heimsborgaravitund og sjálfbæra þróun, mannréttindi og kynjajafnrétti, heilsu, HIV og alnæmi, sem og aukin tækifæri til tækni- og starfsþróunar.

Sjá nánar um: menntun. 

Menning

Í samtengdum heimi nútímans er máttur menningar til að umbreyta samfélögum skýr. Fjölbreytt birtingarmynd menningar – frá dýrmætum sögulegum minjum og söfnum, til gamalgróinna hefða og listforma samtímans – auðgar daglegt líf okkar á ótal vegu. Menningarleg arfleifð er uppspretta sjálfsmyndar og samheldni fyrir samfélög sem raskast vegna ráðalausra breytinga og efnahagslegs óstöðugleika. Sköpun stuðlar að uppbyggingu opinna samfélaga án aðgreiningar. Menningarleg arfleifð og sköpun leggja grunninn að líflegum, hugmyndaríkum og blómlegum þekkingarsamfélögum.

UNESCO telur menningu vera mikilvægan þátt í sjálfbærri þróun, þar sem án hennar getur þróun ekki verið sjálfbær. Mikilvægt er að taka mannlega nálgun að þróun sem byggir á gagnkvæmri virðingu og opnum viðræðum milli menningarheima því það getur leitt til varanlegrar og sanngjarnrar niðurstöðu sem skilur engan eftir. Til að tryggja að tekið sé tillit til menningar í þróunaráætlunum og ferlum, hefur UNESCO tileinkað sér þríþætta nálgun. Stofnunin veitir forystu í hagsmunagæslu fyrir menningu og þróun á alþjóðlegum vettvangi, hún virkjar alþjóðasamfélagið til að setja skýra stefnu og lagaramma, auk þess sem hún vinnur á vettvangi við að styðja stjórnvöld og svæðisbundna hagsmunaaðila til að vernda arfleið, styrkja skapandi greinar og hvetja til menningarlegrar fjölhyggju.

UNESCO veitir einstakan vettvang fyrir alþjóðlegt samstarf til að koma á heildrænu menningarlegu stjórnkerfi sem byggir á mannréttindum og sameiginlegum gildum. Þetta er gert með alþjóðlegum sáttmálum sem leitast við að vernda menningar- og náttúruarfleifð heimsins, og til að styðja við sköpunargáfu, nýsköpun og menningarlega fjölbreytni. Heimsminjaskrá UNESCO er dæmi um slíka sáttmála, en í honum skuldbinda aðildarríki sig til að vernda menningar- og náttúruarfleifðar heimsins. Til þess er haldin sérstök heimsminjaskrá yfir staði á jörðinni sem teljast vera einstakir og alþjóðlega viðurkennd verndarsvæði. Í apríl 2021 voru svæðin 1.121, þar af þrjú á Íslandi: Þingvellir, Surtsey og Vatnajökulsþjóðgarður.

Sjá nánar um: menningu.

Samskipti og fjölmiðlar

Á sviði samskipta- og upplýsingamála leitast UNESCO við að efla tjáningarfrelsi, þróun fjölmiðlunar og aðgang að upplýsingum og þekkingu í samræmi við umboð stofnunarinnar til að „stuðla að frjálsu hugmyndaflæði í bæði orði og mynd.”

Eitt mikilvægasta verkefni UNESCO á sviði samskipta og fjölmiðlunar er verndun óháðra fjölmiðla og fjölmiðlafrelsis, auk verndunar tjáningarfrelsis, enda er það nauðsynlegt skilyrði lýðræðis og sjálfbærrar þróunar. Stofnunin berst gegn hatursorðræðu á netinu, upplýsingafölsunar og dreifingu rangra og/eða villandi upplýsinga. Þetta gerir hún með vitundarvakningu, stöðugu eftirliti, athöfnum til að byggja upp getu, sem og tæknilegum stuðningi við aðildarríkin.

UNESCO hefur þróað námsefni til að þróa fjölmiðla- og upplýsingalæsi, stuðla að jafnrétti kynjanna í fjölmiðlum og efnisvali, og hvetur til viðeigandi fjölmiðlaumfjöllunar um kreppu og neyðarástand víðsvegar í heiminum. Með heildrænni nálgun stuðlar UNESCO að fjölbreytileika fjölmiðla og fjölhyggju með því að efla fjölbreytni efnis, áhorfenda, heimilda og kerfa.

Sjá nánar um: Samskipti og fjölmiðla.

Vísindi og náttúra

Að skapa þekkingu og skilning í gegnum vísindi gerir okkur kleift að finna lausnir á bráðum efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum áskorunum nútímans og til að áorka markmiðum um sjálfbæra þróun og grænni samfélög. Þar sem ekkert land getur náð markmiðum um sjálfbæra þróun eitt og sér, stuðlar alþjóðlegt vísindasamstarf ekki aðeins til vísindalegrar þekkingar, heldur stuðlar það einnig að langvarandi friði í heiminum.

UNESCO vinnur að því að aðstoða lönd við að fjárfesta í vísindum, tækni og nýsköpun (VTN), þróa innlenda stefnu um raunvísindi, endurbæta vísindakerfi sín og byggja upp getu til að fylgjast með og meta árangur í gegnum VTN vísa og tölfræði. Vísindi og tækni styrkja bæði samfélög og borgara og vill UNESCO efla vísindi, auka vísindalæsi og efla þátttöku hins almenna borgara í vísindum svo hann hafi nægilega þekkingu til að taka upplýstar ákvarðanir.

Í sífellt fjölbreyttari samfélögum nútímans heldur UNESCO áfram að vinna að því grundvallarmarkmiði að styðja fólk við að skilja hvert annað og vinna saman að því að koma á varanlegum friði. UNESCO hjálpar einnig til við að gera fólki kleift að skapa og nota þekkingu fyrir réttlát samfélög án aðgreiningar.

UNESCO vinnur að því að aðstoða aðildarríki við að skilja og takast á við áskoranir sífellt fjölbreyttari samfélaga, sem og að gera sér grein fyrir kostum slíkra samfélaga. Einstaklingar verða fjölmenningarlega færir með þeim lærdómi og lífsreynslu sem þörf er á til að ná árangri í okkar flókna og margbreytilega nútímasamfélagi. Með þessu verða þeir jafnframt tilbúnir til að kunna að meta fjölbreytni, og til að takast á við átök með gildi fjölhyggju og gagnkvæms skilnings að leiðarljósi. UNESCO vill stuðla að slíkri þróun og með því að varanlegum friði.

Sjá nánar um: Vísindi og náttúru.

Áherslusvið

Þá hafa verið skilgreind eftirfarandi sérstök áherslusvið stofnunarinnar:

Heimsáherslur: Afríka, jafnréttismál.

Áhersluhópar: Frumbyggjar, ungmenni, þróunarlönd meðal smáeyríkja (​SIDS ​ ), fátækustu ríki heims.

Áherslumálefni: ​ Menntun í þágu betri heilsu og vellíðunar, framkvæmd Heimsmarkmiða SÞ.

Heimsmarkmiðin

Líkt og hjá öðrum alþjóðastofnunum er framkvæmd Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt voru á allsherjarþingi SÞ árið 2015 (Agenda 2030) rauður þráður í öllu starfi stofnunarinnar.

UNESCO ber meginábyrgð á eftirfylgni Heimsmarkmiðs 4 um menntun, en hefur jafnframt mikilvæga aðkomu að eftirfylgni annarra Heimsmarkmiða. Annar rauður þráður og eitt af meginverkefnum UNESCO er t.a.m. að leiða alþjóðlega samvinnu í þeirri viðleitni að tryggja öllum gæðamenntun.

Friður og öryggi

Þá hefur UNESCO forystu um verndun náttúruarfs og menningarminja. UNESCO er sú stofnun SÞ sem hefur sérstakt umboð til að efla frelsi hugmynda í orði og myndmiðlun og vinnur að því að treysta tjáningarfrelsi og fjölbreytileika fjölmiðla – þ.m.t. prentmiðla, ljósvakamiðla og netmiðla. UNESCO vinnur þannig m.a. að eflingu tjáningarfrelsisins og öryggi fjölmiðlafólks.

Einnig leggur UNESCO mikla áherslu á menningarlega fjölbreytni sem lið í að styrkja samfélög og auka lífsgæði. Mikilvægi alþjóðasamskipta, samvinnu þjóða og menningarsvæða á sem flestum sviðum, getur skipt sköpum við að viðhalda friði og öryggi á heimsvísu. Þar eru málaflokkar UNESCO og grundvallarumboð stofnunarinnar ekki undanskilið.

Scroll to Top