Minni heimsins

Árið 1992 setti UNESCO á fót áætlunina Minni heimsins (Memory of the World) með það að meginmarkmiði að hvetja til varðveislu og aðgengis að dýrmætum menningararfi sem geymdur er í skjalasöfnum, kvikmyndasöfnum og bókasöfnum víða um heim.

Skrá UNESCO um Minni heimsins (Memory of the World Register) var stofnuð í kjölfarið árið 1995. Tilgangur þessa varðveislulista er að vekja athygli á mikilvægum andlegum menningararfi heimsins með því að útnefna þar einstaka hluti eða söfn sem hafa sérstakt varðveislugildi. Sýn UNESCO í þessu verkefni er einföld en um leið mögnuð: að menningararfur heimsins sé almenningseign sem beri að varðveita og gera aðgengilegan öllum. Að teknu tilliti til menningarbundinna sérkenna og siðareglna skuli leitast við að gera þennan arf aðgengilegan án hindrana.

Mörg lönd hafa skipað sérstakar landsnefndir sem bera ábyrgð á kynningu á Minni heimsins og velja mikilvæg gögn á sérstaka skrá hvers lands. Slíkar landsskrár hafa orðið til þess að vekja áhuga á fjölbreytni menningararfsins. Landsnefnd Íslands um Minni heimsins var skipuð síðla árs 2012 í þeim tilgangi að kynna Minni heimsins og efna til Landsskrár Íslands.

Skrá UNESCO um Minni heimsins nær til margs konar skráningar og verkefna sem taka mið af mikilvægi og áhrifum hverrar heimildar. Þær skrár sem skipta Ísland máli eru:

Minni heimsins - Heimsskrá (International Register)

Geymir menningararf sem hefur víða skírskotun og mikið alþjóðlegt gildi. Aðalstöðvar UNESCO varðveita þessa skrá. Minni heimsins heimsskrá

Handritasafn Árna Magnússonar í Reykjavík og Kaupmannahöfn og manntalið frá 1703 hafa verið tekin inn á heimsskrá UNESCO um Minni heimsins til marks um mikilvægi þeirra fyrir heimsbyggðina alla.

Manntalið 1703

Árið 2012 sendi Þjóðskjalasafn inn umsókn um að manntalið 1703 yrði tekið á heimsskrá UNESCO um Minni heimsins. Umsóknin var samþykkt 18. júní 2013 en um skráninguna má lesa nánar á vefsetri UNESCO.

Manntalið 1703 er líklega elsta manntal í heimi, sem enn er varðveitt, þar sem getið er allra þegna heillar þjóðar með nafni, aldri og stöðu. Það er einstök heimild um íslenskt þjóðfélag í upphafi 18. aldar. Ákvörðun um að taka manntalið spratt af bágbornu efnahagsástandi landsins og harðindum í lok 17. aldar. Árni Magnússon prófessor við Kaupmannahafnarháskóla og Páll Vídalín varalögmaður fengu það verkefni að kanna ástand og efnahag landsins og taka manntal. Þeir sendu sýslumönnum fyrirmæli um töku manntalsins sem aftur fólu hreppstjórum framkvæmdina sem hófst í desember 1702 og lauk í júní árið eftir.

Manntalsskýrslurnar voru síðan sendar til Danmerkur og voru þar allt til ársins 1921 að þær voru fluttar til Íslands. Með samningi Íslands og Danmerkur árið 1927 urðu þær eign Íslands.

Manntalið er varðveitt í heild sinni í Þjóðskjalasafni á um 1700 blöðum og bréfsnifsum í tveimur skjalaöskjum. Það þætti ekki mikið pappírsmagn nú á tímum, en öðruvísi horfði við á sínum tíma. Í Grímsstaðaannál segir um pappírsnotkun við manntalsgerðina: „þá var pappír dýr í sveitum víða, er öllu þessu var aflokið“.

Hagstofa Íslands gaf manntalið út í prentuðum heftum á árunum 1924-1947, sem síðar voru sameinuð í bókarform. Árið 2001 var manntalið 1703 í fyrsta sinn birt notendum alnetsins á vef Þjóðskjalasafns Íslands. Núna er stafræn gerð manntalsins á manntalsvef Þjóðskjalasafns.

Handritasafn Árna Magnússonar - Arnamagnæan Manuscript Collection

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Nordisk forskningsinstitut, Kaupmannahöfn. Í mars 2008 stóðu Ísland og Danmörk sameiginlega að því að tilnefna handritasafn Árna Magnússonar til skráningar á heimsskrá UNESCO um Minni heimsins, en safnið er varðveitt hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og í Árnasafni í Kaupmannahöfn.

Handritasafn Árna var í hópi 35 verka sem UNESCO setti á heimsskrána þann 31. júlí 2009. Í rökstuðningi UNESCO segir að handritasafn Árna Magnússonar geymi ómetanleg handrit um sögu og menningu Norðurlanda, og raunar stórs hluta Evrópu, allt frá miðöldum til nýaldar, og eru Íslendingasögurnar nefndar sem sérstakt dæmi um þau bókmenntaverk sem handritin geyma og lesin eru á fjölmörgum tungumálum víða um heim enn þann dag í dag.

Handritasafnið geymir um 3000 handrit og handritahluta frá miðöldum og síðari öldum auk fjölda fornbréfa sem Árni safnaði. Meiri hluti safnsins eru íslensk handrit en einnig eru þar norsk, dönsk og sænsk handrit. Það er fyrst íslenskra minja til að komast í heimsskrána um Minni heimsins. Ákvörðun UNESCO sýnir mikilvægi handritanna í alþjóðlegu samhengi og erindi þeirra við heimsbyggðina alla.

Scroll to Top